Nóg að gera.

Í gær fékk Elín eina sex ára í heimsókn mamma hennar var á fundi hér í skólanum og fékk hún að koma með. og mikið var gaman hjá þeim tveimur. Um kvöldið fórum við á Jónsmessugleði að Mannamótum við Skorradal og var mjög gaman var farið í leiki og tók Elín þátt í þeim og boðið var uppá grillaðar pylsur og varðeldur kveiktur. Læt ég fylgja myndir

Fórum við í sund í dag í Borgarnesi og eins og ávallt skemmti Elín sér konunglega fórum við þar á eftir upp að Þóristaðsvatni og að veiða gátum ekki verið lengi því flugan ætlaði okkur lifandi að drepa, fórum við þaðan aftur í Borgarnes og fórum útá bryggju og kastaði Elín nokkrum sinnum en veiddi ekki neitt en það er ekki aðalatriðið enda var mjög gaman að kasta. Komum við um átta þreitt og sæl heim. Læt ég fylgja með myndir frá deginum. 

Elín og Ingibjörg Elín í kötturinn og músin Elín að veiða við Þórisstaðavatn Elín að veiða við bryggjuna í Borgarnesi


Elín og amma

Fórum um hádegi í bæinn. Var mikið gert, byrjuðum á því að fara í Hafnafjörð að kíkja á Magga og Lollu en stoppuðum ekki lengi. Fórum síðan og heilsuðum uppá mömmu hans Gaua og voru teknar myndir af þremur ættliðum. Var farið svo í húsdýragarðinn og skoðuð dýrin og farið í lestina (Elín) og hringekjuna. Við stoppuðum við ekki lengi því það var farið að rigna.

Fórum við þaðan og var keypt veiðistöng handa Elínu þannig að á planinu er að fara að veiða á morgun. Þaðan var farið í sundlaugina í Grafarvogi en það er ein sem elskar að fara í sund helst nýja á hverjum degi. Fórum við þaðan og kíktum aðeins á Matta og Stínu. Komum við heim um níu þreytt og sæl. Læt ég fylgja myndir frá deginum.

Þrír ættliðir. Elín, Gaui og Elín Elín í Húsdýragarðinum (sjáið skrítnu hjónin í bakgrunni) Elín og grísinn.


Elín á Íslandi

Elín hans Gaua kom á föstudaginn var og komu mamma (Annika) og stjúpi (Staffan)hennar með hana, en þau voru í herbergi hér í skólanum en Elín hjá okkur.

Þau stoppuðu í fjóra daga og var prógramm á hverjum degi. Sem dæmi fórum við gullna hringinn Reyki  Ölfusi að skoða nýja hverasvæðið, Kerið, Geysir, Gullfoss og Þingvellir og var farið annað hina dagana. Fóru þau á þriðjudeginum í Bláa Lónið en á meðan kíktum við til Grindavíkur.

Voru þau búin að panta sér hótelherbergi síðustu nóttina á gamla hersvæðinu. Komum við við á KFC í Keflavík og var lán í óláni að bíllinn komst inná bílastæði en þá kom svaka reykur úr pústinu þannig að við þorðum ekki að hreyfa hann.

Kom Baddi mágur og lánaði okkur bíl og skutluðum við þeim uppá völl. Fórum við á 17 júní í bæinn og aftur í Keflavík að skila bílnum en í bænum hafði Matti lánað okkur bíl frá sér (yndislegt að eiga góða að). Höfðum við það náðugt á fimmtudeginum. En í dag fórum við í bæinn og fórum í sund (Breiðholtslaugina). Höfum reyndar farið í með Elínu í Laugadagslaugina og Borgarneslaugina (í gær).  Elín fær ekki nóg af að fara í sund, fórum síðan til Kidda (bróður) og Dittu á eftir og voru Ásta og Elín eins og samlokur allan tímann. Komum um níu svo heim sæl og ánægð. 

Annika og Staffan Pabbi og Elín að skoða síli í fjörunni í Borgarnesi Elín við Geysi. Elín og Ásta

 

 


Reykir (Hveragerði)

Gaui fór í vinnuferð að Reykjum í dag og fékk ég að koma með. Var grillað og var máltíðin tær snilld eins og Sveinu kokki er einni lagið.

Fór ég og kíkti á hverasvæðið og var með mér dóttir Sveinu og barnabarn. Var mjög gaman að sjá og  maður heyrði kraumið í hverunum.  þar var verið að selja heimabakað rúgbrauð sem var bakað í einum hvernum.

ég og barnabarn Sveinu við hverasvæðið rúbrauðið í fjarska Rúgbrauð til sölu Rúgbrauð til sölu


Stiklað á stóru.

Fórum um hvítasunnuhelgina í fyrstu útilegu sumarsins, fórum á Blönduós og eru þeir með mjög gott tjaldstæði. Við lögðum af stað á laugardeginum og vorum komin um fimm á áfangastað og tókum það rólega það sem eftir var kvelds.

Fórum á sunnudeginum að Skagaströnd og síðan héldum við áfram uppeftir skaganum. Stoppuðum við mjög fallegt bjarg sem heitir Króksbjarg og fórum áfram og stoppuðum við Kálfshamarsvík en þar er mjög fallegur viti og rústir allavega þriggja húsa. Las ég við eitt að þar var síðast búið 1930,  mæli ég með að sem flestir skoði. Fórum fyrir tangann og komum aftur að Blönduósi um sjö. Fórum við aftur heim á mánudaginn. Læt ég fylgja nokkrar myndir.

Föstudagurinn var afmælisdagurinn hans Jóns Ásgeirs náðum við að hitta á hann í Kringlunni og rétta honum pakka. Kíktum við á Guðrúnu og Valda á laugardagskvöldið og fórum við svo á pöbbinn á eftir og var mjög gaman.

Núna á sunnudeginum vorum við í þrifum í afleisingum og síðan var slappað af  það sem eftir var kvölds.

kálfshamarsvík Króksbjarg Gaui á þeim fallega stað Kálfshamarsvík


Uppstigningardagur

Við vorum vöknuð um tíu í morgun og drifum við okkur í sund niðrí Borganes. Komum við til baka um hádegi og fórum við uxahryggina uppá Þingvelli í yndislegu veðri stoppuðum við nokkrum sinnum og tók ég myndir og leifi ykkur að njóta.

Fórum við áfram frá Þingvöllum og komum við til Pabba og Gullu í sumarbústaðinn og fengum við góðar kræsingar. Komum við á leiðinni heim við hjá Kalla og Sveinu í Hveragerði þannig að við  vorum ekki komin heim fyrr en um átta.

 

Mynd 1 Mynd 2 Hugrún

 

 


Góð helgi.

Fórum á vinkonu hitting til Grindavíkur á laugardaginn. Vorum komin um þrjú þangað og var byrjað á að fara í veiðiferð og fóru Sissa Bill Gummi Jón Jónsi og ég og var Eiríkur skipperinn.

Var siglt útað Krísuvíkurbjargi og stoppað stutt smá tekið af myndum var frekar erfitt í sjóinn þannig að farið var með Sissu mig og Bill í land og fóru þeir hinir aftur út og veiddu. Fórum við heim til Sollu og Eiríks og var þar borðað í yndislegu veðri og var aðalmaturinn alveg frábær, þorskur nýkominn uppúr sjónum sem strákarnir veiddu fyrr um daginn. Stoppuðum við lengi og fórum við ekki heim fyrr en um eitt eftir miðnætti,  þannig að heim var ekki komið fyrr en um þrjú. Læt fylgja með nokkrar myndir.

Sváfum við lengi og slöppuðum af á sunnudeginum. Fórum við um þrjú af stað áleiðis til Borgarnes og enduðum á að keyra að Hítarvatni og skoða okkur um. Læt fylgja með myndir. 

  

Hugrún,Sissa,Ragnheiður S,Ragnheiður G,Rebekka,Solla, vantaði Bjarney hún komst ekki Allur hópurinn (Gaui er þarna bakvið) Bátsferðin Sissa og Gummi Við Hítarvatn


Andakílsvirkjun.

Ég (Hugrún) er búin að vera þrældugleg þessa viku, er búin að fara í leikfimi á hverjum degi það sem af er viku. Fór í smá myndaferð í dag fór upp að Andakílsvirkjun og tók myndir og labbaði efst upp og þvílíkt rok. Leyfi ykkur að njóta afraksturins og læt fylgja myndir.

 

 Virkjunarhúsið við Andakílsá c_documents_and_settings_hugrun_desktop_drasl_p51362982.jpg 


Sunnudagsrúntur

Fórum um ellefu af stað að heiman og var ferðinni haldið áleiðis suður, fórum við Svínadalinn og Hvalfjörðinn og var stoppað oft á leiðinni, mörg myndastopp. Síðan fórum við m.a að vita í Hvalfirðinum og borðum nesti sem við tókum með okkur.

Keyrðum svo til Reykjavíkur og fórum við í heimsókn til Kidda og Dittu og fengum þar vöfflur og fleira. Var svo keyrt heim seinni part dags og haft það rólegt það sem eftir var dags. Tók mynd af vitanum læt fylgja með.

 

Viti í Hvalfirðinum

 


Árshátíð og fl

Fórum á árshátíðina hjá Gaua á miðvikurdaginn. Var hún meiriháttar vel heppnuð maturinn alveg meiriháttar og eins hljómsveitin eins og ég sagði alveg snilld í alla staði.

Skruppum í bæinn í dag og skoðum nýja bílinn hans Magga bróður alveg meiriháttar flottur Benz tók nokkrar myndir á leiðinni í bæinn læt eina fylgja með.

 

Hross


Kostningar og fl.

Skruppum í bæinn í gær og byrjuðum á að fara til mömmu hans Gaua. Fórum svo og kusum og kíktum aðeins til Sjönu. Þar fengum við eins og ávalt harðfisk með smjöri ég segi bara nammi namm(reyndar fengum við meira lagt á borð en við sáum bara harðfiskinn).

Enduðum svo daginn að vera boðið í mat til Matta og Stínu og svignaði borðið þar af kræsingum. Horfðum við aðeins á kosningarnar hjá þeim og var farið heim um ellefu.

Dagurinn í dag, fórum af stað Gaui var búin að tala um óvissuferð var farið áleiðis norður og var endað að Hraunsnefi og fengum við okkur kaffi og með því og mæli ég eindregið með því að fara þangað. Var nokkrum sinnum stoppað á leiðinni til baka og læt ég fylgja með nokkrar myndir.

c_documents_and_settings_hugrun_desktop_drasl_p42661981.jpg P42662063


Árgangsmót Hugrúnar ´63 í Grindavík

Fórum á árgangsmót ´63 í Grindavík á miðvikudagskvöld. Það var hittingur og einn af okkur skólakrökkunum var á landinu hann býr í Kanada.

Það var meiriháttar gaman, en við fórum fyrst á Saltfisksetrið og var því lokað kl tólf og fórum við þá á barinn Lukku Láka og var þar mjög gaman. Fórum við síðan heim um kl: hálf tvö. Við fengum við slyddu og leiðinda færð heim.

Síðan höfðum við það náðugt á fimmtudeginum. Tókum  smá labbitúr í kvöld og læt fylgja með tvær myndir.

Kvöld  Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri

 


Smá rúntur

Skruppum niðrí Borgarnes til að redda hjólinu mínu sem var orðið vindlaust. Stoppuðum á leiðinni og heilsuðum upp á hesta og viti menn einn naut blíðu Gaua að hann ligndi aftur augunum leyfi ykkur að njóta.

Hestur fær atlot.


Dásamlegt veður.

Þvílíkt veður í dag. Við skruppum í bæinn til að versla fyrir skólann komum reyndar við í Tómstundahúsinu og keyptum púsl eru á frábæru verði þar (afmælisgjöf handa Elínu hans Gaua) og ég freistaðist reyndar í eitt. Í bakaleiðinni stoppuðum við á Kjalanesi í yndislegu veðri og ég tók myndir læt fylgja með.

 

Mynd tekin á Kjalanesi


Gleðilega páska

Höfðum það rólegt og gott í dag. Tókum smá rúnt og mættum þá Matta og Stínu og komu þau í kaffi til okkar. Læt fylgja mynd af Gaua sem ég tók af honum á föstudaginn langa með páskaeggið okkar og skálaði líka í bjór.  Og læt ég fylgja mynd af bíl Matta og Stínu á ferð yfir gömlu Hvítárbrúna.

 

Gaui í góðum gír. Matti og Stína á keyrslu yfir gömlu Hvítárbrúna.

 

 

 


Hvammstangi

Við fórum á Hvammstanga í gær. Matti hringdi í okkur og sagði okkur að það væri hestasýning barna þá um kvöldið og mundu barnabörn hans taka þátt. Ákváðum við að skreppa norður og vorum við komin um sjö um kvöldið. Horfðum við á sýninguna og var hún alveg frábær, en  börnin voru  alveg niðrí tveggja ára sem voru að sýna. 

Við komum aðeins við hjá Unni dóttur Matta og Stínu og tók ég myndir af Tótu dóttur Matta og Stínu og barnabarni en þær voru í þjóðbúningi sem Stína og Unnur höfðu saumað. Læt ég fylgja með myndir af þeim og mynd af barnabarni Matta og Stínu. Keyrðum við heim um hálf ellefu í alveg yndislegu veðri tunglskynsbjörtu.

Tókum við því rólega í dag fórum í Bónus í Borgarnesi og það  var alveg greinilegt hvaða helgi var skollin á um tólf á hádegi og var alveg brjálað að gera. Jón Ásgeir kom í heimsókn í dag var hann á leiðinni í bústað til pabba síns í Borgarfyrði. Höfðum við það náðugt það sem eftir var dags.

Tóta og Emilía Diljá í þjóðbúníngum Emilía Diljá að býða eftir að sýna


Ferming

Fórum í fermingarveislu til Siggu systir í dag. Ingibjörg Ásta var að fermast ég tók myndir og læt ég nokkrar fylgja hér.

 

Systkinin. Bjarni Fannar Arnór Ingibjörg Ásta og Kristján Pabbi Jón Ásgeir og Maggi Fermingarbarnið spilaði af mikilli snilld. 


Opið hús að Hesti

Fórum upp að tilraunabúinu Hesti í dag þar var opið hús. Fórum við að skoða og voru rollurnar ansi skrautlegar m.a. var einn hrúturinn var með þrjú horn og var skemmtilegt að sjá. Læt ég fylgja með mynd af honum og öðrum til. Þar hitti ég (Hugrún)stelpur sem ég var að vinna með fyrir um.þ.b. fimmtán árum læt ég fylja með mynd af Jóhönnu Maju og dóttir hennar.

Var búin að heyra um gömul útihús og langaði alltaf að sjá þau, vissi ég ekki hvar þau voru og það skondnasta við allt saman var að þau voru í miðju Borgarnesi. Við fórum við að skoða þau og tók ég sem endranær myndir og læt fylgja með

Hann minnti mig á einhyrning Einn flottur. Jóhanna Maja og dóttir hennar. Gömlu útihúsin í Borganesi.


Gönguferð.

Ég (Hugrún) fór í góða gönguferð um hádegi í dag. Fór út á engjar og labbaði hring og kom uppá þjóðveg. labbaði ég framhjá Andakílsá m.a. og tók ég myndir og leifi ykkur að njóta.

 

Það var mikill ís við ána. Mikil drulla á leiðinni Úr gönguferð

 

 


Sumarbústaðarferð

Fórum  á föstudaginn austur fyrir fjall eða í Vaðnes í Grímsnesi í sumarbústað og voru Matti og Stína með okkur. Var ferðin austur yfir heiðina frekar leiðinleg. Mikil hálka og skafrenningur en við komumst heilu og höldnu í bústaðinn en þangað komum við um sexleitið . Við heyrðum um kvöldið að veðrið hefði versnað og var heiðinni lokað við alltaf jafn heppinn Smile.

Fórum á laugardaginn í smá rúnt og kíktum til Pabba og Gullu. Gulla í málarahúsinu sínu að mála  og tók ég mynd af henni og læt ég fylgja með. Fórum við svo niður á Eyrarbakka. Ég (Hugrún) hafði heyrt að það væri búið að rífa æskuheimili mitt, en það hafði farið svo illa í jarðskjálftanum s.l sumar. Höfðu þeir gert það mjög snyrtilega og var það eins og ekkert hús hefði verið þar, læt ég fylgja með mynd af þeim tveimur sem eftir eru (Mundakotunum).

Höfðum það svo það bara náðugt það sem eftir var kvölds við (Hugrún) Stína við hannyrðir og þeir að horfa á sjónvarp.

Fórum við svo heim á leið um hádegi á sunnudegi og gekk það alveg glimrandi. Reyndar er alveg hundleiðinlegt veður núna á Hvanneyri,  skafrenningur og leiðinlegt skyggni. Tók ég (Hugrún) mynd af veðrinu frá tröppunum og læt ég fylgja með mynd.

 

Gulla að mála. Mundakotin tvö sem eftir eru. Kom hryðja um hálf sjö. Tekin af tröppunum heima.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ferðalögin okkar

Höfundur

Gaui og Hugrún
Gaui og Hugrún
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • IMG_1645
  • IMG_1624
  • IMG_1638
  • IMG_1627
  • IMG_1627

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 32720

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband