Stiklað á stóru.

Fórum um hvítasunnuhelgina í fyrstu útilegu sumarsins, fórum á Blönduós og eru þeir með mjög gott tjaldstæði. Við lögðum af stað á laugardeginum og vorum komin um fimm á áfangastað og tókum það rólega það sem eftir var kvelds.

Fórum á sunnudeginum að Skagaströnd og síðan héldum við áfram uppeftir skaganum. Stoppuðum við mjög fallegt bjarg sem heitir Króksbjarg og fórum áfram og stoppuðum við Kálfshamarsvík en þar er mjög fallegur viti og rústir allavega þriggja húsa. Las ég við eitt að þar var síðast búið 1930,  mæli ég með að sem flestir skoði. Fórum fyrir tangann og komum aftur að Blönduósi um sjö. Fórum við aftur heim á mánudaginn. Læt ég fylgja nokkrar myndir.

Föstudagurinn var afmælisdagurinn hans Jóns Ásgeirs náðum við að hitta á hann í Kringlunni og rétta honum pakka. Kíktum við á Guðrúnu og Valda á laugardagskvöldið og fórum við svo á pöbbinn á eftir og var mjög gaman.

Núna á sunnudeginum vorum við í þrifum í afleisingum og síðan var slappað af  það sem eftir var kvölds.

kálfshamarsvík Króksbjarg Gaui á þeim fallega stað Kálfshamarsvík


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ferðalögin okkar

Höfundur

Gaui og Hugrún
Gaui og Hugrún
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1645
  • IMG_1624
  • IMG_1638
  • IMG_1627
  • IMG_1627

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 32840

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband