Færsluflokkur: Ferðalög

Flutningar. Útleiga

Fluttum um síðustu helgi úr skóla íbúðinni með frábærri hjálp frá Matta og Stínu. Og þvílíkt veður fór uppí 22 metra á sek í mestu hviðunum og gekk á með hryðjum. Vorum við svo heppinn að Pétur smiður lánaði okkur kerru til að flytja í,og einnig vorum við svo heppinn að ná með dótið á milli hryðja.

Set myndir frá flutningunum. Settum íbúðina í Iðufelli á leigu í síðustu viku og gekk það svo fljótt fyrir sig að við vorum að skrifa undir í dag, enda fengum við svo frábæra hjálp í gær við það að þrífa út en  Ólöf hjálpaði okkur. Svo næst á dagskrá verður að ganga frá skóla íbúðinni að þrífa hana út Wink Þannig nóg að gerast þessa dagana. En núna erum við flutt í tveggja herberja raðhús hér á Hvanneyri og í fyrsta skipti á ævinni er ég með sér þvottaherbergi og þvílíkt æði Smile Læt þetta duga í bili. Það gengur ekkert að setja inn myndir eitthvað lélegt netið hér svo ég reyni seinna. 

    Þvottavélin Matti og Stína Puð


Afmæli (Kristín Ösp)

Skruppum í bæinn bæði á laugardag og sunnudag, fórum á sunnudaginn aðeins í íbúðina okkar í bænum. Á sunnudaginn fórum við í Mosfellsbæ í þriggja ára afmælið hennar Kristínar Aspar en þar var margt um manninn og borðin kiknuðu af veitingum enda Ásdís snillingur í bakstri. Tók ég smá af myndum og læt fylgja með. Bæti einu við það var svo frábært sólsetur áðan og ég náttúrlega greip myndavélina og læt mynd fylgja.

 

Kristín Ösp að blása á kertin á afmæliskökunni. Kristín Ösp á trampólíninu  Frábært sólsetur sem var í kvöld.

 

 


Helgin (Reykir Hveragerði)

Fórum að Reykjum Hveragerði á laugardaginn í Reykjapartí og höfðum við tjaldvagninn með.  Gaui byrjaði á því að vinna því netið var niðri og á meðan kíkti ég á aldamótahátíðina á Eyrarbakka, og var margt þar um manninn.

þar var fullt plan af fornbílum og var mikið verið að selja í Gónhól (gamla frystihúsið). Hentum við upp tjaldvagninum þegar ég kom til baka og klæddum við okkur upp( ég náði að klára deginum áður skrokkinn minn og var í honum). Þegar við mættum á svæðið þá komumst við að því að þetta var óvænt tvöfalt afmæli Gurrý er fertug á árinu og Sveina er sextug og þvílík veisla Sam tengdasonur Sveinu og Þóra dóttir hennar Sveinu sáu um matinn og þvílíkt lostæti.

 Höfðum við tjaldað tjaldvagninum þar á lóðinni og mikið var notalegt að labba bara út og fara að sofa. Fórum um hádegi daginn eftir og rétt kíktum á Sveinu og Kalla áður en lagt var af stað. Það var svo dásamlegt veður í Borgarnesi þegar við komum þar að ég stóðst ekki mátið og tók myndir læt fylgja.

Var margt um manninn á Eyrarbakka Fornbíll til sýnis. Var selt úr skottinu sultutau og handavinnu. Ég á leið í veirsluna í nýa skokknum Dásamlegt veður í Borgarnesi 


Við litlu flökkudýrin

Fórum á miðvikudaginn uppað Langavatni, hugmyndin var að kíkja eftir berjum en í fyrra var allt svart þar. Núna voru þau pínulítil og lítið af þeim en allavega tók ég myndir í yndislegu fallegu veðri.

Skruppum í dag í bæinn en Gaui þurfti að útrétta fyrir vinnuna sína og ég fékk að koma með : ) . Komum við hjá Matta og Stínu og þau buðu okkur í mat,  takk kærlega fyrir okkur, hún var svo æðisleg að hjálpa mér að klára lopa light skokkinn minn en ég var lens á að hekla líníngu á kragann og handveginn. Enn og aftur takk kærlega Stína.

Gaui að fara yfir brúna við Langavatn Gaui við gömlu Hvítárbrúna. Svona var frábært sólarlag þegar við komum heim í kvöld.


Helgin

Skruppum til Reykjavíkur í gær kíktum niðrá bryggju og náðum í hornið á Gay pride sáum líka þessa flottu seglskútu og nokkra dáta uppáklædda Smile Náði mynd af þeim og smá horn á Gaua. Stoppuðum ekki lengi í Reykjavík keyrðum heim en komum við í Borgarnesi í yndislegu veðri. Enduðum daginn á því að kíkja á pöbbinn hér á Hvanneyri og fenginn sér einn öl fyrir svefninn.

Fórum í dag smá rúnt hér um nágrennið og kíktum í heimsókn til Lalla og Bellu og fengum kaffi og með því.

 

Flotta seglskútan Dátarnir og smá af Gaua Frábært veður í Borgarnesi

 


Verslunarmannahelgi að baki.

Fórum frá Hvanneyri um hádegi á föstudeginum. Komum við á Hvammstanga og kíktum til Unnar og Stefáns (dóttir Matta og Stínu). Fórum þaðan á þremur bílum komum að Hólum í Hjaltadal um sex leitið, þ.e.  Matti, Stína, Tóta og við.

Á laugardeginum var farið víða. Byrjuðum á að keyra til Siglufjarðar og skoða okkur um í mjög fallegum bæ, fórum þaðan á Ólafsfjörð en keyrðum þar í gegn og héldum svo áfram að Dalvík og enduðum á Akureyri. Kíktum á Glerártorg og fengum okkur að borða fórum svo í jólahúsið alltaf gaman að skoða svo var haldið heim ( á Hóla ) á ný eftir um 360 km ferð.

Á sunnudeginum fórum við á Hofsós í yndislegu veðri og skoðum við okkur um. Fórum líka á Sauðarkrók og keyptum í matinn því Unnur, Stefán og börn komu um kvöldið og borðuðu með okkur.

Á mánudeginum fórum við til Sauðakróks og fórum við í heimsókn til vinafólks Matta og Stínu.

Á þriðjudeginum fórum við að Grettislaug í mikilli þoku og á bakaleiðinni tók ég mynd þar sem aðeins sást í gegn um þokuna, en um leið og ég kom aftur í bílinn þá sást ekki neitt. Lögðum af stað heim um fimm eftir yndislega helgi og þökkum kærleg fyrir okkur. Læt fylgja myndir úr ferðinni.

 

Síldarmynjasafnið á Siglufirði Hofsós Hjaltadalur  Matti og Stína við Grettislaug Kirkjan að Hólum í Hjaltadal

 

 


Margt á daga okkar drifið

Frá 4 til 12 júlí vorum við í Svíþjóð. Fórum við Gaui og Elín  um þrjú um nóttina (þann 4 júlí) uppá völl frá Hvanneyri og lögðum við af stað kl átta um morguninn þegar við komum til Danmerkur um eitt þá fórum við strax yfir og tókum bíl í Malmö.

þaðan keyrðum við til Trelleborgar og komum við hjá Önnu og Valla og sóttum handklæði og fl. Það keyrðum við til Höör og fórum á tjaldstæðið og vorum þar í húsi í þrjá daga. Fórum þaðan til Malmö og skiluðum bílnum og fórum með lest til Linköping sem var þriggja tíma lestarferð með Elínu til mömmu sinnar.  þar sváfum við eina nótt á Radion-Sas sem var mjög gott hótel.

Daginn eftir fórum við með lestinni til baka til Malmö en lentum í all svakalegri rigningu á leiðinni á lestarstöðina og komum rennvot þangað. Tókum annan bílaleigubíl í Malmö og keyrðum til Trelleborgar og vorum hjá Önnu og Valla í góðu yfirlæti restina á ferðinni.

Fórum 18 júlí og 19 með tjaldvagninn í ferð með Matta og Stínu að Gröf á Snæfellsnesi (7km að vegamótum) Stína og Tóta voru  í hestaferð og höfðum við það gott á meðan með Matta. Meðal annars fórum við að Hraunsvatni og henti Gaui nokkrum sinnum útí en fékk ekki neitt. Alla vega góð  útiveran. Um nóttina var ansi hvasst og ruggaði vagninn vel. Fórum við snemma á sunnudaginn eftir góða helgi.

 


Flakk

Fórum af stað til Reykjavíkur um hádegi og þá höfðu Sigga og Baddi komið við hér og fengið lánaðan tjaldvagninn. Fórum við fyrst í Smáralindina og þar hitti ég Sissu og Bjarney og var systir hennar Sissu með líka og fékk ég mér súpu og brauð.

Fórum svo til Keflavíkur að sækja bílinn okkar sem var loksins tilbúinn af verkstæðinu, þvílíkir gullmolar sem við eigum sem að vinum: Að lána okkur bílinn sinn meðan okkar var bilaður (Matti og Stína) . Komum við svo við í bakaleiðinni hjá Kidda og Dittu og hittust Elín og Ásta og þvílíkir fagnaðar fundir, stoppuðum þar í smástund.

Og var síðan haldið heim á leið og fór María Rós með okkur upp í Grafarvog og vorum við komin heim um níu í kvöld öll þreytt.

 


Góð helgi að baki.

Ásta hans Kidda bróður kom til okkar á fimmtudaginn og á föstudaginn var farið í útilegu. Fórum við um hádegi af stað og komu Matti og Stína og drógu tjaldvagninn fyrir okkur norður til Hvammstanga. Eftir þessi venjulegu stopp, Bónus og lofta sig "stopp" þá vorum við komin seinni partinn norður.

Laugardaginn var farið á hestbak og var Tóta þeirra Matta og Stínu svo frábær að leyfa stelpunum að fara á hestbak og leiddi hún þær nokkrar ferðir og þvílíkt hvað við vorum heppinn með veður. Vorum í yndislegri blíðu. Eftir hestaferðina var farið í sund og eftir það var borðað heima hjá Unni (dóttur Matta og Stínu) og Stebba.

Fórum heim snemma á sunnudeginum og komum Kiddi og Ditta uppá Hvanneyri til að að sækja Ástu. Eftir að hún var farinn var mikill söknuður hjá Elínu enda því þær voru svo yndislegar saman. Læt fylgja myndir.

Elín á hestbaki Ásta á hestbaki Elín með gæfum hesti

 

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ferðalögin okkar

Höfundur

Gaui og Hugrún
Gaui og Hugrún
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1645
  • IMG_1624
  • IMG_1638
  • IMG_1627
  • IMG_1627

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 32880

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband