Færsluflokkur: Ferðalög

Þýskaland og Politi

Í gær fórum við til Þýskalands með vinum okkar til að versla og skoða Hitlershótelið svokallaða. Ferðin byrjaði vel um borð í bílaferjunni og tók aðeins tæpa 4 tíma.  Þegar við komum yfir um 12 leitið þá byrjuðum við á að fara í verslunamiðstöðina þar sem við vorum vön að skipta í evrur og fá okkur hádegisverð. Verslunarmiðstöðin var lokuð og greinilega komin í endurbyggingu, þannig að við fórum niður í Sassnitzbæ til að finna hraðbanka sem við gerum að lokum. Eftir að hafa fengið okkur kjúkling á veitingastað fórum við af stað til Bergen.

Strax eftir  fyrstu beygjuna út úr bænum var ég (Guðjón) stoppaður fyrir of hraðan akstur. Ég var forviða þar sem ég var á 66km hraða og engin skilti sem gáfu til kinna hvaða hraðatakmörk voru. GPS tækið sýndi að vísu að ég mætti keyra þarna á 100km hraða en hámarkshraðinn var 50.  Sektina þurfti að greiða á staðnum og voru það 25  evrur. Ferðinni var síðan haldið áfram til Bergen þar sem við versluðum bjór m.m. Á leiðinni tilbaka fórum við að skoða Hitlershótelið sem var frábær sjón.

Um er að ræða  6 km langa byggingu sem Hitler lét byggja en var aldrei kláruð. Í þessari 6km löngu hótelbyggingu var gert ráð fyrir 300.000 gestum. Ekki veit ég hvar Hitler ætlaði að finna þessa gesti. Búið er að loka fyrir aðgang almennings að hluta byggingarinnar enda að hruni komin.

Til að komast að þeim hluta sem við vildum skoða keyrði ég eftir gömlum vegi sem ég hafði keyrt áður en uppgötvaði þegar komið var langt inn á veginn að búið var að breyta honum í reiðhjólastíg. Heppni að ég hitti ekki lögguna aftur. Síðan tók við siglingin heim og lentum við í Jagersbo um 23:30

Veðrið hér í dag er búið að vera frábært. 22 stiga hiti og sól.

Hitlershótelið


Trelleborg og letilíf

Vöknuðum um sjö í morgun en vorum lengi að koma okkur framúr. Fórum um ellefu til Trelleborgar í heimsókn. Kíktum fyrst til Hildar en hún átti afmæli í dag og kíktum síðan í kaffi til Önnu.

Veðrið er búið að vera leiðinlegt í dag, sól en mikill vindur. Eins gott að maður festi fortjaldið vel niður um daginn, annars hefði það sennilega flogið af eins og það gamla.  Grilluðum svínarif og lögðumst  í leti við sjónvarpsgláp  Erum búin að panta okkur ferð til Þýskalands með bílinn til að versla og skoða eyjuna Rugen.   Hundarnir eru flest allir farnir af svæðinu þannig að nú er hér ró og friður.


Sól og blíða

Sætasti hundurinn á svæðinuGamli grániPersneskur kötturÞessi er átta ára og er svo ljúfur og góðurBúið að vera yndislegt veður í dag, sól og blíða og eyddum við deginum í rólegheitum á tjaldsvæðinu. Löbbuðum um og kynntumst nágrönnunum, en hér er mikið af köttum og hundum í nágrenninu og fór ég (Hugrún) á milli og fékk að taka myndir af litlu gullunum og set ég myndir af þeim hér að ofan.

Í hjólhýsunum tveimur fyrir aftan okkur eru 12 smáhundar. Læt mynd af þeim hér að neðan

Hundalíf

  Enn meira hundalíf


Slappað af í jagersbo

 Í fyrradag fengum við vini okkar Önnu og Valla í kvöldmat. Að sjálfsögðu byrjaði að rigna rétt áður en þau komu, sennilega vegna þess hversu við vorum búin að hrósa blíðunni hérna uppfrá. Í gær fórum við síðan heim til þeirra í Trelleborg og Anna tók að sér að lita gráu hárin hennar Hugrúnar sem hafa myndast síðustu vikur. Reyndar ekki skrítið þar sem hún hefur þurft að umgangast mig (Guðjón ) dag og nótt.  Kvöldið tókum við síðan rólega og reyndum að gera sem minnst.   

Sólin var komin upp up sjö leytið í morgun og skein til hádegis. Það er ekki búið að vera sérstaklega heitt í dag, aðeins 8 gráður. Notuðum daginn til að reyna að vera eins löt og hægt var eftir ferðaálag síðustu vikna. Gerum sennilega sem minnst yfir helgina en síðan er ætlunin að skoða norður hluta Skánar nánar.

 Á myndinni hér að neðan má sjá Hugrúnu gefa tveimur nýkomlingum. Og munið svo elskurnar mínar að skrifa í gestabókina eins og allir góðir gestir gera.

Hugrún og endurnar


Höganäsferð - Leirkeraferð

Í dag fórum við til smábæjarins Vallåkra og skoðuðum leirkeraverksmiðju. Síðan fórum vi til Höganäs sem liggur norðvestur af Helsingborg. Þar er að finna hina ævafornu og frægu leir og  postulíns verksmiðju "Höganäs".  Við heimsóttum gömlu verksmiðjuna en þar fer fram verksmiðjuútsala sem vert er að kíkja á.  Að sjálfsögðu keyrðum við sveitarvegina tilbaka enda sést ekkert merkilegt frá hraðbrautum. Fundum nýjan veg sem við höfðum ekki farið áður og rákumst þar m.a. á vatnsaflsvirkjun sem byggð var árið 1918.

Hér er búinn að vera 16 stiga hiti og sól í dag og læt ég fylgja með mynd af Hugrúnu við prjónaskap í sólinni.

 

Hugrún við prjónaskap

 

 

 

 

Hugrún við Höganäs

Sjálfsmorðstilraun dádýra

Í dag skruppum við til Simrishamn sem er í suðausturhluta Skánar (u.þ.b. 70km). Þetta er geysifallegur bær með mikið af fallegum gömlum húsum. Kíktum þar á tjaldsvæði sem okkur var sagt frá af nágranna okkar hér í Jagersbo. Síðan keyrðum við vestur á leið og völdum að keyra heim á sveitarvegunum en ekki á hraðbraut til að reyna að sjá eitthvað nýtt og merkilegt.

Að sjálfsögðu tókst Hugrúnu að plata mig til að stoppa við einn "Herragarðinn" enn  við heimkynni hins heimsfræga "Nils Holgeirssonar" (er að vera þreyttur á öllum þessum "Herragörðum" þó fínir séu). Hugrún tók myndir og mér tókst að fá lánaða myndavélina til að taka myndina sem fylgir með hér að neðan.

Á heimleiðinni keyrðum við sveitarvegi eins og áður sagði, en þarna er mikið af dádýrum á flakki við vegina.  Og viti menn tvö þeirra hlupu fyrir bílinn hjá okkur og rétt sluppu við að lenda á kvöldverðarborðinu okkar. Ég vil taka fram að í grillveislunni í fyrrakvöld, át ég dádýrakjöt sem reyndar var mjög gott (keypti það í verslun). 

 

Hugrún Hugrún í nærmynd


Rólegheit í sveitinni

Tókum það rólega í dag. Veðrið var mjög gott 14 stiga hiti og sól. Það eina sem við gerðum var að fara út í búð og kaupa í matinn,og slappað af eftir það. Set inn myndir frá því í gær þegar við fórum til Önnu og Valla.

Gaui og Ella MaríaHildur og Indra


Afmælisveisla Bjarka

Fórum um tólf leitið til Trelleborgar í heimsókn til Önnu og Valla. Þar  fengum þar kaffi og vöfflur og voru  Sigurlaug þar með Ellu sína og Hildur ásamt fjölskyldu. Stoppuðum  við þar  í um það bil tvo tíma. Fórum síðan  upp í Lund í afmælisveislu til Bjarka fyrrum vinnufélaga hans Gaua (frá Rala). Þar var grillað í garðinum og skemmti fólk sér konunglega, sérstaklega börnin sem voru ansi mörg. Í veislunni voru allmargir íslendingarnir í lopapeysum og fylgir mynd af þeim hér að neðan. Afmælisbarnið er fyrir miðju á myndinni,.

Um átta leitið fórum við gamla fólkið af stað heim á leið í Jagersbo enda komið kvöld og farið að kulna. Á svæðinu okkar var mikið um að vera enda er hér aðalfundur áhugamanna um KABE húsvagna þessa helgi.

Afmælisbarnið og lopapeysuliðið

 


Forseti Pólands og ég

Gaui í FinnlandiÍ gær vöknuðum við um hálf átta og fórum niður í morgunverð (mjög góður). Fór upp aftur og lagði mig(Hugrún) til ellefu fór þá í labbitúr um hverfið og keypti mér smá að borða í matvöruverslun, Gaui vað á ráðstefnunni til þrjú. Fórum þá niður í miðbæ Helsinki þar var margt að skoða margar fallegar byggingar.Fórum og skoðuðum rússneska kirkju mjög flott þegar við komum þaðan  komum við að byggingu semvoru lífverðir og virkaði eitthvað mikið að gerast  svo tvær stelpur til okkar og spurðu okkur hvort forseti Póllands væri kominn. Næst var að lögreglumenn sem ráku okkur frá húsinu.  Ég sjálfur papparazzinn (Hugrún) fór á flug við höfðum ekki hugmynd um að einhver forseti væri að mæta á svæðið. Annars voru tuttugu mínútur í að hann kæmi svo að papparazzinn nennti ekki að bíða og lét sér nægja að taka myndir af limmum og frægu fólki.Síðan héldum við áfram upp götuna og viti menn annað papparaazzi tækifæri kom. Verið var að opna formlega lúxusverslunina Louis Vuitton og var þar mikil viðhöfn. limmurnar runnu í hlaðið og myndavélin fór á flug. Eftir þetta skruppum við inná bar til að róa okkur og fórum síðan uppá hótel (Radison SAS)Í morgun vöknuðum snemma enda að fara í flug, fórum til Danmerkur kl 10,20 og komum þangað um tólf keyrðum beint upp á tjaldstæði og höfðum það rólegt það sem eftir var dags. Læt fylgja með myndir úr Finnlandsför.Beðið eftir forsetanumLouis Vuitton viðhafnaropnun

Finnland

Vöknuðum kl 7 í morgun það var um klukkutíma keyrsla til Svagentorp í Svíþjóð þar sem við tökum lestina yfir til Danmerkur, við skildum bílinn þar eftir. Flugum klukkan 12 til Finnlands hér er þriggja tíma mismunur miðað við Ísland.

Enduðum daginn á að fara niður í miðbæ og settumst niður á góðan veitingastað og pöntum okkur stóra næringarríka nautasteik.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ferðalögin okkar

Höfundur

Gaui og Hugrún
Gaui og Hugrún
Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • IMG_1645
  • IMG_1624
  • IMG_1638
  • IMG_1627
  • IMG_1627

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.8.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband