Færsluflokkur: Ferðalög

Miðsumar og íllskeyttir veðurguðir

Eftir að við komum heim i Jagersbo á fimmtudagskvöld, höfum við að mestu tekið það rólega.  Svíar héldu upp á miðsumar á föstudag og var ætlunin að horfa á þá reisa miðsumarstöngina og dansa í kringum hana með þeim.  

það rigndi svo mikið þennan dag að lítið var úr dansinum. Fórum síðan um kvöldið til að halda uppá daginn með síldaráti og tilheyrandi með vinum okkar Önnu og Valla í Trelleborg. Sváfum þar reyndar um nóttina þar sem við vörum ekki keyrsluhæf.

Fórum uppeftir á laugardag og höfum legið í leti síðan með þeirri undantekningu að við fórum að skoða húsbíla og hýsi í Vinslöv í dag.Veðrið síðustu daga hefur heldur ekki boðið uppá ferðalög enda ýmist rigning með þrumum og tilheyrandi eða stormur eins og í dag.

Læt fylgja með mynd af matnum á laugardagskvöld..

mmmmmmmmmmmmmmmm

 


Poznan Szczecin (Í fyrradag)

16 júni 

Lögðum af stað frá Poznan um ellefu í morgun og keyrðum áleiðis til Szczecin og það var oft stoppað á leiðinni. Keyrðum meðal annars framhjá bílasölu eða gömlum bílum sem var verið að henda en þarna það voru líka tvær þyrlur á svæðinu.

Komum til Szczencin um fimmleitið og komum við okkur fyrir á fínu hóteli ætluðum svo niðrí bæ að borða, en þá kom svo mikil rigning að það var ekki hundi út sigandi þannig að við borðuðum á hótelinu og höfðum það bara gott það sem eftir var kvölds.

17 júní

Lögðum af stað frá Szczencin um tíu um morguninn áleiðis til Stralsund í Þýslalandi. Stoppuðum á svakalega stórum flóamarkaði sem var með allt milli himins og jarðar til sölu keyptum ekkert  enda evrurnar voru nýbúnar Frown. Þegar við vorum nýkomin yfir landamærin til Þýskalands þá stoppaði Þýska lögreglan okkur voru þeir með vegaeftirlit og spurðu þeir Gaua um vegabréf og ökuskírteini og Gaui var fyrri til og sagði þeim að vinur okkar væri skráður fyrir bílnum, brostu þeir og hristu hausinn yfir þessum Íslendingum sem væru í fríi í Svíþjóð og væru að ferðast um þýskaland Tékkand og Pólland.

Ég spurði þá hvort ég mætti taka mynd af þeim og var það sjálfsagt og læt ég fylgja mynd með. Komum til Stralsund um tvöleitið og skráðum við okkur inn á hótel strax og fórum svo til Bergen sem er um hálftíma keyrsla og ætluðum að kaupa bjór en þegar við komum þar þá var lokað fyrir söluna á dollubjórnum kl 4 svo við keyrðum aftur til Stralsund og kíktum niðrí bæ og fengum við okkur að borða og fórum svo uppá hótel snemma af því að við ætluðum að vakna snemma.

18 Júní

Vöknuðum sjö um morguninn og fórum í morgunverð og tékkuðum okkur út, fórum síðan til Bergen og keyptum bjór og kíktum svo yfir til Sassnitz og skoðum okkur aðeins um af því að við áttum bókaða ferð með ferjunni til Trelleborgar klukkan 12.45. Fórum við á áætluðum tíma og komum við til Trelleborgar rúmlega fimm. Komum við til Önnu og þáðum við kaffi og vöfflur og komum við uppí Höör um átta um kvöldið þreytt og lúin.

Gaui og Þýska lögreglan


Poznan í miðvestur Póllandi

Um klukkan 11.00 yfirgáfum við Legnica í suður Póllandi og heldur upp á við og enduðum í Poznan.

Stoppuðum í litla ljóta bænum þar sem pólski páfinn er frá. Allavega var þar mikil og fín stytta af honum. Smábæirnir á leiðinni voru einstaklega illa farnir af viðhaldsleysi en þó ekki eins slæmir og tékknesku bæirnir.

Poznan sem við erum í núna er einn af stærstu bæjum í Póllandi og er frægur fyrir að vera mikil menningarborg (þ.e. gömul menning). Bókuðum okkur inn á glæsihótel í miðbænum.

Fórum síðan niður á aðaltorgið og skoðuðum gamlar byggingar og tókum þátt í  miklu "festivali" en mikið var að ske í bænum. Byrjuðum á því að fá okkur þá bestu pizzu sem við höfum fengið og að sjálfsögðu pólskan bjór með. 

Hugrún í Poznan

 

 


Pólland Legnica

Fengum okkur hótel í Prag sem var ok útlits og höfum við oft verið á svoleiðis hótelum en nóttin var ömurleg ég vaknaði við þegar Gaui hreyfði sig þá brakaði í rúminu þannig að við fórum þreytt af stað níu um morguninn áleiðis til Póllands.

Keyrðum hraðbraut áleiðis og allt í einu voru við á nýjum vegi og gps tækið þekkti sig ekki og keyrðum við af hraðbrautinni og vorum við þá komin í skekkju um 140 km en eins og Matti og Stína segja þá sáum við bara meira. Keyrðum um fjallgarð og var þar aðvörunarskilti um dádýr og allt í einu sá ég dádýr til hliðar við bílinn og segi við Gaua en sætt dádýr en sem betur fer fór það ekki út á veginn. Komum til Legnica um þrjú og fórum á hótel sem Gaui hafði fundið á netinu á 55 evrur en ekki bókað, þegar Gaui kom á hótelið sagði afgreiðslukonan að herbergið kostaði 80 evrur og Gaui minn var ekki sáttur við það verð svo að við keyrðum í næstu íbúðabyggð og komumst inná næsta net (stálumst) og gerðum netbókun á herbergið og fengum við það á 55 evrur en afgreiðslukonan var ansi skrítinn þegar Gaui kom aftur. En þetta var hið fínasta herbergi.
Skoðuðum miðbæinn sem var mjög fallegur og fengum við okkur að borða og enduðum við daginn í rólegheitum uppá hóteli.

Prag

Lögðum af stað frá Berlín um tíu í morgun komum við í Netto og keyptum okkur rauðvín áður en við lögðum af stað það er svo ódýrt kostar bara 1.20 evru flaskan. Keyrðum niður til Tékklands strax þegar við komum yfir landamærin sáum við hvað eftir annað hús í niðurníðslu að grotna niður. Fórum við um fjallgarð og ansi mikinn krókóttan veg niður fjallið.

Komum í bæ sem heitir Útsí og fengum okkur að borða og keyrðum svo áfram til Prag þar komum við klukkan hálf sex og  var stoppað á fyrsta hótelinu og fengið inni.

Gaui labbaði að sjálfsögðu beint á næstu krá til að prófa tékkneska bjórinn.


Berlín skoðuð

Dagur 2 í Berlin

Yndislegur dagur, vöknuðum um 10 leitið og byrjuðum á því að skoða nágrennið. Fórum síðan niður í Fredriksstrasse og fengum okkur alvöru steikur og fórum síða í gönguferð um þennan bæjarhluta.

Komum við á einstaka krám og könnuðum bjórmenningu þjóðverja. Hugrún tók uppá því óvenjulega hátterni að drekka bjór.  Um 5 leitið var farið tilbaka til "Birkenwerder"  og stefnan tekið  á krána frá kvöldinu áður. (sjá neðan) Fengum okkur að borða úkraniska súpu sem var æðislega góð. Fórum síðan uppá Hótel og reyndum að hunsa "evrópu-keppnina í fótbolta". Stefnum á að keyra niður til Tékklands á morgun.

Gærdagurinn 

Vöknuðum seint og vel,  fórum á lestarstöðina sem er við hliðina á hótelinu okkar og keyptum dagsmiða í lestina og fórum niðrí miðbæ Berlinar að skoða það sem var áhugavert.  Byrjuðum á því að fá okkur smá bjór og síðan var farið í 2 tíma ferð með rútu til að skoða áhugaverða staði í þessari merku borg. Þessi rútuferð var reyndar ógleymanleg þar mikið merkilegt var að sjá. Eftir hringferðina um borgina fórum við aftur uppá hótel með lestinni og var það reyndar 25km ferðalag sem tók innan við 30mín. Enduðum að vísu á heimakránni í hverfinu.  Þar tók vertinn á móti okkur og upplýsti okkur um menningu bæjarhlutans "Birkenwerder" með mikilli innlifun.


Komin til Berlin

Í morgun hófum við ferðalag sem ætlunin er að taki 10 daga. Við tókum ferju frá Trelleborg til Sassnitz í gamla austur-þyskalandi. Ferjan er 4 tíma á milli svíaríkis og þýskalands.

Ætlunin var að gista í Stralsund en við enduðum á því að keyra alla leið niður í Berlin c.a. 320km

Komum okkur síðan fyrir á Hóteli í útjaðri Berlin en ætlunin er að skoða bæinn næstu 3 daga. Síðan er ætlunin að keyra niður til Tékklands og stoppa þar 2-3 daga. Farið verður í gegnum Pólland í bakaleiðinni.

 


Helsingborg, Helsingör

Vöknuðum um níu og þvílkur hiti þá strax var 24 stiga hiti, við ákváðum að skreppa til Helsingborgar og taka ferjuna yfir til Danmerkur og skoða Helsingör. Bærinn er lítill og ákaflega gaman að ganga um göturnar þar. Eyddum deginum í að skoða byggingar og finna skuggana af húsunum.

Enduðum síðan á að fá okkur pizzu og tókum síðan bátinn yfir í Helsingborg. Ferðin yfir tók ekki nema tuttugu mínutur.

þegar við komum heim í Jagersbo settumst við niður með nágrönum okkar og fengum okkur í glas eins og góðum íslendingum sæmir á laugardagskveldi.

 Dönsk lúxuxkerra

  Sá gamli með gómsæta pizzu

 


Strákarnir okkar.

Fórum til Trelleborgar í dag. Strákarnir okkar eiga afmæli 5 og 6 júní, Jón Ásgeir átti afmæli í gær en Óli átti afmæli í dag á þjóðhátíðardegi Svía. Lögðum af stað niður eftir um hádegið og kíktum í heimsókn til Önnu og Valla og þáðum kaffi og  með því.

Fórum síðan til Óla í heimsókn og á leiðinni til hans sáum við svolítið fyndið. Maður gekk með bíl eftir götunni, en þetta var bíll sem er ekki þarf bílpróf til að aka,  þar sem hann er með skellinöðrumótor og kemst ekki nema á 40km hraða. Við vorum viss um að maður væri ekki að spara bensín heldur væri í göngutúr með bílinn. (sumir fara jú í göngutúr með hundinn. (sjá myndina að neðan)

Hittum Óla og réttum honum smá pakka.   Eyddum síðan kveldinu með nágrönnum okkar í jagersbo.

Úti að ganga með bílinn


Söknuður

Hiti og aftur hiti. Veðríð er búið að vera dásamlegt síðustu daga en dagurinn í dag sló allt út.  Klukkan sex að kveldi var hitinn skv. veðurstofunni í Höör kominn niður í 29 stig.

Erum búin að liggja í leti í gær og dag enda alltof heitt til að hreyfa sig. Fórum að vísu niður í Lund í dag til að versla og reyndum að halda okkur innandyra.  Ég (Guðjón) eyddi síðan deginum í vinnu (fjarvinnu). Vígðum að vísu kæliviftuna okkar nýju í dag.

Engar myndir að þessu sinni enda of erfitt að lyfta myndavélinni. Söknum vina okkar Matta og Stínu mikið.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ferðalögin okkar

Höfundur

Gaui og Hugrún
Gaui og Hugrún
Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • IMG_1645
  • IMG_1624
  • IMG_1638
  • IMG_1627
  • IMG_1627

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.8.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 33492

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband