Leiðinda veður

Er búið að vera leiðinda veður undanfarna daga. Vöknuðum um átta í gær þá kom haglél og sáum við það á stofuglugganum. Ég Hugrún fór að vinna klukkan níu og var að vinna til þrjú skruppum þá til Reykjavíkur Ásta hans Kidda bróður átti afmæli stoppuðum í smá stund tékkuðum þá á íbúðinni uppí Iðufelli og tókum smá með okkur heim og eftir það kíktum við til Matta og Stínu komum svo heim um ellefu.

Í dag höfum við tekið því rólega fórum í gönguferð hérna um Hvanneyri og verð ég (Hugrún) svo að vinna frá fjögur til níu í kvöld.


Helgin

Þetta er búin að vera mjög notaleg helgi. Sjana og Stebbi kíktu í heimsókn á laugardaginn og um kvöldið kíktum við í heimsókn til  Guðrúnar og fórum svo í smástund á pöbbinn hér á Hvanneyri. Kiddi og Ditta komu í heimsókn á sunnudeginum og fórum við útí stóra fjós öll saman og höfðu krakkarnir mjög gaman af því. Tók myndir af krökkunum í fjósinu og læt þær fylgja með.

Ásta í fjósinu á HvanneyriEgill í fjósinu á Hvanneyri  Ásta og Egill í fjósinu á Hvanneyri 


Langavatn

Var að vinna til hálf eitt í dag og fór heim tók það rólega þangað til Gaui kom heim. Fórum upp að Langavatni í Borgarfyrði og þvílík fegurð það var alveg helling af berjum þarna og tíndi ég smá. Vorum reyndar frekar seint á ferðinni en ætlum alveg örugglega að fara aftur og þá fyrr að deginum. Læt fylgja með myndir af berjum og frábæru útsýni.

Langavatnber, ber, ber og mikið


Flutt til Hvanneyrar

Erum búin að standa í flutningum síðan 29 ágúst og er nýi jeppinn búinn að vera vel nýttur. Gaui fór sem dæmi með þvottavélina þurkarann og sjónvarpið ( það er 40 tommu ) í einni ferð.

En á sunnudag  var restin tekin, Maggi og Kiddi voru alveg snillingar í burði í Reykjavík en hérna á Hvanneyri hjálpuðu Valdi og krakkarnir hans okkur. Það er komin tilhlökkun að sofa í rúminu okkar enda erum  búin að sofa á vindsæng síðan 30 ágúst sem var ekki slæmt en samt sem áður jafnast ekkert á við rúmið okkar enda þvílíkur draumur núna.

Set inn myndir af fluttningsfólkinu á Hvanneyri en ég var ekki í Reykjavík til að taka mynd af Magga og Kidda. Verð að fá að bæta við, fórum til Reykjavíkur ég (Hugrún) fór til læknis og kom allt frábært út úr því vorum svo að stússast í bænum. Komum svo heim til Hvanneyrar um sex. Fór ég  í kvöld á opið hús í handavinnubúð á Borgarnesi sem er á hverjum þriðjudegi og var með handavinnu með mér og var mjög gaman.

Burðarfólkið á Hvanneyri


Hvanneyri

Margt að gerast þessa dagana. Erum komin á Hvanneyri fékk vinnu (Hugrún) í Olís í Borgarnesi og þessa vikuna erum við í herbergi á skólanum,  en þann fyrsta sept fáum við þriggja herbergja íbúð sem við verðum í til bráðabirgða í þrjá til fjóra mánuði svo fáum við þriggja herberja íbúð í parhúsi. Þannig að næsta helgi fer í það að flytja. Smile Ætla að bæta smá við, fór áðan í göngutúr hérna um Hvanneyri í yndislegu veðri tók nokkrar myndir og læt fylgja með.

Svona er veðrið í dagFallegt á Hvanneyri


Kvennareið

Fórum til Hvammstanga í gær til að fylgjast með hinni árlegu  kvennareið. Fórum við um tíu um morguninn og komum norður um eitt, hittum stelpurnar uppí hesthúsi um hálf fjögur og fylgdumst með þeim og var tekið mikið af myndum.

Fóru þær ferðina í tveimur hollum eftir fyrstu var stoppað við rétt og hestarnir settir inn á með var farið í leiki og  og ný nefnd stofnuð. Var svo haldið áfram allir kátir og glaðir, voru allir komnir á endastöð um átta um kvöldið og var þar grilluðu stelpurnar og borðuðu. Við Gaui fórum til Hvammstanga og var þá Matti búinn að grilla lambakjöt og var það mjög gott.

Gaui fór síðan og sótti stelpurnar eða Stínu, Tótu og Unni og fórum við seint heim á leið eða um ellefu. Þurftum við að koma við á Hvanneyri í heimleiðinni þar sem Gaui þurfti að starta netþjóni.

Keyrðum við smá þar um og vorum við stoppuð af löggunni þar og var Gaui látinn blása og auðvitað var allt í orden. þegar við keyrum afleggjarann til baka áleiðis til Borgarnes viti menn þá sjáum við blikkandi lögguljós og var gert að stoppa. Þetta reyndust vera sömu löggurnar og stoppuðu okkur korteri áður. Alltaf gott löggan er virk á góðu nótunum. Jæja restin af heimferðinni gekk áfallalaust fyrir sig og komum við um hálf tvö heim bæði örþreytt. Læt fylgja myndir úr kvennareiðinni frábæru. það sem eftir var helgi höfðum við það rólegt.

Stína og UnnurUnnur Tóta og StínaMynd af hópnum eða partur af honum 

 


Loksins ný færsla

Það er mikið búið að gerast hjá okkur að undanförnu. Fórum um verslunarmannahelgina í þjórsárdalinn á fimmtudeginum og keyrðum á föstudeginum með Önnu og Valla í Landmannalaugar.

 Fórum Dómadalsleið að Landmannalaugum og fékk Gaui að prófa nýa jeppann og keyra yfir nokkur vöð og keyrðum hina leiðina til baka eða að Hrauneyjavirkjun. Fórum á laugardeginum aftur til Reykjavíkur og náðum í mömmu hans Gaua og fórum á ættarmót að Smáratúni í Fljótshlíð og var það mjög gaman enduðum svo helgina á sameiginlegum kvöldmat þ.e.a.s komum öll með okkar mat og borðuðum saman

Systurnar

 

Fórum  síðan um helgina á Fiskidaginn mikla á Dalvík, fórum á föstudeginum og vorum við komin um níu. Þegar þangað var komið hittum við vinkonu okkar Denice, mömmu hennar og systur. Við dömurnar fórum við heimahúsin þar og fengum okkur fiskisúpu,  en bæjarbúar bjóða uppá ókeypis súpu á föstudeginum. Þær voru meiriháttar góðar.

Fórum á laugardeginum niðrá bryggju og var þar boðið uppá margt fiskmetið og var það ókeypis og vorum svo mett að við fengum okkur ekkert að borða um kvöldið. Fórum á bryggjusöng á laugardagskvöldið ásamt fleirum og var það mjög gaman. Kvöldið var svo endað með að fara seint í sæng ánægð og glöð. Á sunnudeginum var farið áleiðis heim og kíktum við á pabba og Gullu en þau voru í Hrafnagili í Eyjafirði. Komum svo seint um síðir heim eða um hálf ellefu um kvöldið þreytt og ánægð eftir helgina.

 


Nýi bíllinn ISUZU TROOPER

Keyptum okkur bíl í dag og fengum hann á frábæru verði. Og hér fyrir neðan er myndir af gripnum.

Nýi bíllinnNýi bíllinn okkar ISUZU TROOPER

 


Komin heim til Íslands

Við komum til Íslands á fimmtudag. Flugið gekk vel og fylgir hér á eftir smá upptalning um hvað við gerðum síðustu dagana í Svíaríki.

Laugardagur  13 júlí

Okkur tókst að selja hjólhýsið í vikunni og eigum að afhenta það á þriðjudag. Notuðum daginn til að kveðja yndislega nágranna okkar hér í Jagersbo og byrjuðum á því að bjóða í kaffi og kökur og enduðum daginn á áfengu meðlæti sem fengið var í Þýskalandsferðum okkar.

Sunnudagur 14 júlí

Notuðum daginn til að setja niður í töskurnar og undirbúa heimferð. Fórum síðan til vina okkar í Trelleborg og vorum þar um nóttina.

Mánudagur 15 júlí.

Notuðum daginn til að þrífa hjólhýsið og undirbúa það fyrir afhendingu á þriðjudag. Kaupendurnir komu á þriðjudag og voru að sjálfsögðu jafn brosmildir og glaðir þegar þeir drógu hjólhýsið í burtu eins og við vorum sorgmædd, enda hafði hjólhýsið verið heimilið okkar s.l. 4,5 mánuð. Þegar hýsið var farið fórum við niður í Trelleborg til vina okkar Önnu og Valla og gistum þar þangað til við fórum í flug til Íslands á fimmtudeginum.

Miðvikudagur 16 júlí.

Nutum sólarinnar og fórum Hugrún og Anna til Kivik á austurströnd "Skánar" og fórum þar á markaðinn sem er stærsti árlegi markaðurinn á "Skáni" Á fimmtudeginum keyrðu Anna og Valli okkur til kastrup. Semsagt 4,5 mánaða sumarfríi er lokið.........

Að sjálsögðu mætti Guðjón í vinnuna á föstudeginum enda "vinnualki".  Föstudagurinn og  laugardagur voru síðan nýttir til að leita að bifreið í staðinn fyrir hinn yndislega Volvo sem við seldum þegar við fórum til Svíaríkis í byrjum mars mánaðar.

Set inn mynd af okkar yndirslegu nágrönnum á tjaldstæðinu í Jagersbo.

 

Góðir nágrannar

 


Kivik

Fórum af stað um hádegi í dag til að skoða austurströnd Skánar. Keyrum niður til Hörby og fórum þaðan eftir skemmtilegum skógarvegum til bæjarins Kivik sem m.a. er þekktur fyrir að þar er haldinn risamarkaður einu sinni ári.

Þetta er lítill sætur sjávarbær. Þegar þangað var komið hringdu tveir sem vildu skoða hjólhýsið sem við höfðum sett á sölu. Og viti menn við keyrðum heim í Jagersbo með hraði og seldum hýsið strax fyrra parinu sem kom að skoða. Afhentum vagninn á þriðjudag, passlega fyrir heimferð sem er á fimmtudag næstu viku.

Smábátar í Kivik

 Folttur þessi


Ängelholm og gestabókin

Lögðum af stað að heiman um ellefu áleiðis til Ängelholm veðrið var mjög gott, var reyndar aðeins búin að sóla mig (Hugrún ).

Vorum búin að heyra svo margt um Ängerholm frá nágrannanum. Fórum þangað  og skoðuðum þar miðbæinn og voru þar margar styttur þar á meðal ein sem voru tvö brjóst ætlaði að biðja Gaua að fara á milli þeirra en hann fór eitthvað hjá sér og fékkst bara að standa á bak við hana.

Fórum svo í einskonar fjölskyldugarð sem var helling af dýrum smáhestar, grísir,  hænsni , páfagaukar og var þar líka stórt svið og var þar leiksýning fyrir börnin semsagt frábær staður fyrir fjölskylduna enda var þar mikið af fólki. 

Verð að bæta einu við fórum á bakaleiðinni á bensinstöð þá sá ég ekki neitt smá flott mótorhjól, það var 1926 Harley Davidson og var maðurinn að setja bensín á það læt fylgja mynd af því ég sá þetta hjól líka á safni.

Elsku dúllurnar mínar, munið svo að skrifa í gestbókina.

 

Gaui milli brjósta en ekki minnaHugrún hjá listaverki í Angerholm Samskonar hjól og maðurinn á bensínstöðinni var á

 


Margt enn að sjá á Skáni

Fórum frá Jagersbo um hádegi í rigningu og var ferðinni heitið til Trelleborgar. Við ákváðum síðan þegar við vorum farin af stað að kíkja fyrst á Jóhönnusafnið í Sturup og sáum ekki eftir því. Þarna var að finna mikið af gömlum hlutum frá árumunum 1880-1960, allt frá gömlum saumavélum til fyrsta bílsins sem svíar framleiddu árið 1892. Semsagt frábært safn sem sem mætti fá meiri athygli.

Síðan fórum við áfram til "Ales stenar" sem var frábær staður fyrir hugsuði nútímans. Þar er að finna sóldagatal og sólklukku skapaða úr ákveðnum fjölda steina sem mynda eggjalaga form.

Þegar við komuð þangað vorum við hungruð og þreytt og höfðum hugsað okkur að fá okkur eitthvað í mallakútinn, en þar var ekkert að fá nema ís og reyktan fisk ýmsu tagi. Þegar við vorum búin að skoða þessu merku steina (í rigningu) fórum við að sjálfsögðu og fengum okkur reyktan lax sem fór misvel í maga okkar.

Fórum síðan til Trelleborgar til að losa okkur við borð og stóla sem voru í fortjaldinu hjá okkur. Semsagt fyrsta stig í að undirbúa heimferð.

Alvöru mótorhjól

Sólúrið


Allskonar veður

Fórum um hádegi í Skanes Djurpark og var þá fínasta veður við fórum í stuttbuxum og var heitt og gott í garðinum og meira að segja sól. Fórum eftir dýragarðsferðina uppí Hassleholm og kíktum aðeins á mannlífið og á bakaleiðinni komum við á bensínstöð og þá kom þessi úrhellis rigning sem varði reyndar mjög stutt , eru búin að heyra í þrumum öðru hvoru það sem eftir er dags.

BjörnStorkar

 


31 stigs hiti

Yndislegur dagur. Okkur ofbauð hitinn á tjaldsvæðinu og yfirgáfum svæðið við 29 stiga hita. Ákváðum að njóta 16 ára gamallar loftkælingar í bílnum og fórum til Landskrona að skoða baðstrandir og annað tjaldsvæði.

Ekki tók betra við.. Að vísu var blástur á ströndin en ekki nógu kaldur. Ströndin við Landskrona var vægast sagt æðisleg. Eftir að hafa stoppað þar í 3 tíma ákváðum við að fara heim á leið og komum við í þjóðgarði sem er í miðjum Skáni.

Gengum um hluta af garðinum í c.a. 1 klst og fórum síðan af stað til Höör í 31 stigs hita,

Komum heim um kvöldmatarleytið og grilluðum okkur nautasteik og drukkum hvítvín með ( sem er þvert á delikatess reglur).

 

 

Baðstrandagestir


Pétur farinn heim

Vöknuðum um níu í morgun og tókum það rólega fram yfir hádegi. Fórum aðeins í sólbað það þýðir nú ekkert að koma næpuhvítur heim aftur eins og við hefðum verið allan daginn á barnum.

Fórum í Lund um hálf tvö og Pétur fór heim til Stokkhólms með lestinni klukkan hálf fimm. Skruppum svo til Trelleborgar til Önnu og Valla í heimsókn og  komum heim í Höör um níu leytið.

Semsagt rólegur sólríkur dagur (27 gráður)

Ég læt fylgja mynd af feðgunum sem ég (Hugrún) tók í gær

Feðgar

 


Markaður Hörby

Fórum um hádegi á útimarkað í Hörby og þvílíkur mannfjöldi, þar sáum við m.a. ansi skondinn karl hann minnti mig (Hugrúnu)  á hobbita úr Hringadrottinsögu, en Gaua á jólasvein læt fylgja mynd af karli. Fórum svo pínulítið lengri leið til baka þ.e. við keyrðum alla leið upp i Hassleholm og þaðan til Tyringe til að skoða lágvöruverðsmarkað sem seldi aðallega antikvörur.

Þaðan fórum við til Perstorp og keyrðum síðan til Höör í gegnum stóran þjóðgarð.

Læt fylgja með mynd af hobbitanum

Hobbiti


Flakk

Fórum á fætur um tíu í morgun, þá var hringt útaf hjólhýsinu. vorum við búin að auglýsa það til sölu og vildi koma fólk koma og skoða hýsið  og komu þau um tólf og skoðuðu og ætla að láta okkur vita eftir helgi. Fórum við aðeins til Lundar og vorum við komin aftur heim í Höör um fimm leitið. Áður skoðuðum við "Alpaka" dýrin enn og aftur,  aldrei of oft læt ég og fylgja mynd af þeim.

Alpaka


Pétur

Fórum til Lundar um hádegi til að sækja Pétur son hans Gaua. Hann kom hann með lest frá Stokkhólmi til Lundar og vorum við heillengi að finna lestastöðina í Lundi það eru eintómar einstefnugötur í Lundi,  því nú ver en það hafðist á endanum. 

Fórum til Svedala vorum búin að heyra að það væri markaður og þegar við komum þar þá voru það búðirnar sem voru búnar setja vörur út á götuna á mjög lækkuðu verði. Kíktum svo til Trelleborgar til Önnu og Valla og stoppuðum þar til sex og keyrðum þá heim í Jagersbo. Verð að bæta einu við,  það komu snilldar hjólhýsi sem nágrannar okkar í gær og læt ég mynd af þeim fylgja með. 

Nýir nágrannar

 

 

 


Ven (Hven)

Í gær var það tekið rólega innan sviga við Gaui vorum að þrífa vagninn gaui þreif hann að utan ég að innan. og Gaui rétti hann við líka þannig að ég renn ekki lengur á Gaua þegar við erum  komin uppí rúm.

Í dag fórum við til Landskrona og tókum þar bát til eyjarinnar Ven (sem Svíar kalla Ven en Danir Hven), sem er hálftíma sigling frá Landskrona. Eyjan liggur á milli Danmerkur og Svíaríkis.Það var yndislegt veður það var hlíðabolaveður og var ég ( Hugrún )  með rautt nef þegar heim var komið.  Við komum síðan heim um kvöldmatarleytið, dauðþreytt eftir allt labbið um eyjuna.

 Hér að neðan eru myndir frá ferðalaginu.

 

VenGaui við gömlu kyrkjuna í Ven

 


Smyge

Fórum til Trelleborgar um hádegi og kíktum til Önnu og Valla í kaffi. Fórum svo til Smyge sem er um 15 min að keyra frá þeim en það er syðsti oddi Svíðjóðar og  ákaflega fallegur staður með bryggjulægi og nokkur hús sem var verið að selja handverk í.

Þar líka gamall reykofn sem var reyktur fiskur í til forna.  það var mjög gott veður í dag reyndar svolítill blástur en mjög hlýtt.

 

Gaui við reykofninnFlottur viti sem var þarna líka


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ferðalögin okkar

Höfundur

Gaui og Hugrún
Gaui og Hugrún
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1645
  • IMG_1624
  • IMG_1638
  • IMG_1627
  • IMG_1627

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 32929

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband