Þýskaland og Politi

Í gær fórum við til Þýskalands með vinum okkar til að versla og skoða Hitlershótelið svokallaða. Ferðin byrjaði vel um borð í bílaferjunni og tók aðeins tæpa 4 tíma.  Þegar við komum yfir um 12 leitið þá byrjuðum við á að fara í verslunamiðstöðina þar sem við vorum vön að skipta í evrur og fá okkur hádegisverð. Verslunarmiðstöðin var lokuð og greinilega komin í endurbyggingu, þannig að við fórum niður í Sassnitzbæ til að finna hraðbanka sem við gerum að lokum. Eftir að hafa fengið okkur kjúkling á veitingastað fórum við af stað til Bergen.

Strax eftir  fyrstu beygjuna út úr bænum var ég (Guðjón) stoppaður fyrir of hraðan akstur. Ég var forviða þar sem ég var á 66km hraða og engin skilti sem gáfu til kinna hvaða hraðatakmörk voru. GPS tækið sýndi að vísu að ég mætti keyra þarna á 100km hraða en hámarkshraðinn var 50.  Sektina þurfti að greiða á staðnum og voru það 25  evrur. Ferðinni var síðan haldið áfram til Bergen þar sem við versluðum bjór m.m. Á leiðinni tilbaka fórum við að skoða Hitlershótelið sem var frábær sjón.

Um er að ræða  6 km langa byggingu sem Hitler lét byggja en var aldrei kláruð. Í þessari 6km löngu hótelbyggingu var gert ráð fyrir 300.000 gestum. Ekki veit ég hvar Hitler ætlaði að finna þessa gesti. Búið er að loka fyrir aðgang almennings að hluta byggingarinnar enda að hruni komin.

Til að komast að þeim hluta sem við vildum skoða keyrði ég eftir gömlum vegi sem ég hafði keyrt áður en uppgötvaði þegar komið var langt inn á veginn að búið var að breyta honum í reiðhjólastíg. Heppni að ég hitti ekki lögguna aftur. Síðan tók við siglingin heim og lentum við í Jagersbo um 23:30

Veðrið hér í dag er búið að vera frábært. 22 stiga hiti og sól.

Hitlershótelið


Trelleborg og letilíf

Vöknuðum um sjö í morgun en vorum lengi að koma okkur framúr. Fórum um ellefu til Trelleborgar í heimsókn. Kíktum fyrst til Hildar en hún átti afmæli í dag og kíktum síðan í kaffi til Önnu.

Veðrið er búið að vera leiðinlegt í dag, sól en mikill vindur. Eins gott að maður festi fortjaldið vel niður um daginn, annars hefði það sennilega flogið af eins og það gamla.  Grilluðum svínarif og lögðumst  í leti við sjónvarpsgláp  Erum búin að panta okkur ferð til Þýskalands með bílinn til að versla og skoða eyjuna Rugen.   Hundarnir eru flest allir farnir af svæðinu þannig að nú er hér ró og friður.


Sól og blíða

Sætasti hundurinn á svæðinuGamli grániPersneskur kötturÞessi er átta ára og er svo ljúfur og góðurBúið að vera yndislegt veður í dag, sól og blíða og eyddum við deginum í rólegheitum á tjaldsvæðinu. Löbbuðum um og kynntumst nágrönnunum, en hér er mikið af köttum og hundum í nágrenninu og fór ég (Hugrún) á milli og fékk að taka myndir af litlu gullunum og set ég myndir af þeim hér að ofan.

Í hjólhýsunum tveimur fyrir aftan okkur eru 12 smáhundar. Læt mynd af þeim hér að neðan

Hundalíf

  Enn meira hundalíf


Slappað af í jagersbo

 Í fyrradag fengum við vini okkar Önnu og Valla í kvöldmat. Að sjálfsögðu byrjaði að rigna rétt áður en þau komu, sennilega vegna þess hversu við vorum búin að hrósa blíðunni hérna uppfrá. Í gær fórum við síðan heim til þeirra í Trelleborg og Anna tók að sér að lita gráu hárin hennar Hugrúnar sem hafa myndast síðustu vikur. Reyndar ekki skrítið þar sem hún hefur þurft að umgangast mig (Guðjón ) dag og nótt.  Kvöldið tókum við síðan rólega og reyndum að gera sem minnst.   

Sólin var komin upp up sjö leytið í morgun og skein til hádegis. Það er ekki búið að vera sérstaklega heitt í dag, aðeins 8 gráður. Notuðum daginn til að reyna að vera eins löt og hægt var eftir ferðaálag síðustu vikna. Gerum sennilega sem minnst yfir helgina en síðan er ætlunin að skoða norður hluta Skánar nánar.

 Á myndinni hér að neðan má sjá Hugrúnu gefa tveimur nýkomlingum. Og munið svo elskurnar mínar að skrifa í gestabókina eins og allir góðir gestir gera.

Hugrún og endurnar


Höganäsferð - Leirkeraferð

Í dag fórum við til smábæjarins Vallåkra og skoðuðum leirkeraverksmiðju. Síðan fórum vi til Höganäs sem liggur norðvestur af Helsingborg. Þar er að finna hina ævafornu og frægu leir og  postulíns verksmiðju "Höganäs".  Við heimsóttum gömlu verksmiðjuna en þar fer fram verksmiðjuútsala sem vert er að kíkja á.  Að sjálfsögðu keyrðum við sveitarvegina tilbaka enda sést ekkert merkilegt frá hraðbrautum. Fundum nýjan veg sem við höfðum ekki farið áður og rákumst þar m.a. á vatnsaflsvirkjun sem byggð var árið 1918.

Hér er búinn að vera 16 stiga hiti og sól í dag og læt ég fylgja með mynd af Hugrúnu við prjónaskap í sólinni.

 

Hugrún við prjónaskap

 

 

 

 

Hugrún við Höganäs

Sjálfsmorðstilraun dádýra

Í dag skruppum við til Simrishamn sem er í suðausturhluta Skánar (u.þ.b. 70km). Þetta er geysifallegur bær með mikið af fallegum gömlum húsum. Kíktum þar á tjaldsvæði sem okkur var sagt frá af nágranna okkar hér í Jagersbo. Síðan keyrðum við vestur á leið og völdum að keyra heim á sveitarvegunum en ekki á hraðbraut til að reyna að sjá eitthvað nýtt og merkilegt.

Að sjálfsögðu tókst Hugrúnu að plata mig til að stoppa við einn "Herragarðinn" enn  við heimkynni hins heimsfræga "Nils Holgeirssonar" (er að vera þreyttur á öllum þessum "Herragörðum" þó fínir séu). Hugrún tók myndir og mér tókst að fá lánaða myndavélina til að taka myndina sem fylgir með hér að neðan.

Á heimleiðinni keyrðum við sveitarvegi eins og áður sagði, en þarna er mikið af dádýrum á flakki við vegina.  Og viti menn tvö þeirra hlupu fyrir bílinn hjá okkur og rétt sluppu við að lenda á kvöldverðarborðinu okkar. Ég vil taka fram að í grillveislunni í fyrrakvöld, át ég dádýrakjöt sem reyndar var mjög gott (keypti það í verslun). 

 

Hugrún Hugrún í nærmynd


Rólegheit í sveitinni

Tókum það rólega í dag. Veðrið var mjög gott 14 stiga hiti og sól. Það eina sem við gerðum var að fara út í búð og kaupa í matinn,og slappað af eftir það. Set inn myndir frá því í gær þegar við fórum til Önnu og Valla.

Gaui og Ella MaríaHildur og Indra


Afmælisveisla Bjarka

Fórum um tólf leitið til Trelleborgar í heimsókn til Önnu og Valla. Þar  fengum þar kaffi og vöfflur og voru  Sigurlaug þar með Ellu sína og Hildur ásamt fjölskyldu. Stoppuðum  við þar  í um það bil tvo tíma. Fórum síðan  upp í Lund í afmælisveislu til Bjarka fyrrum vinnufélaga hans Gaua (frá Rala). Þar var grillað í garðinum og skemmti fólk sér konunglega, sérstaklega börnin sem voru ansi mörg. Í veislunni voru allmargir íslendingarnir í lopapeysum og fylgir mynd af þeim hér að neðan. Afmælisbarnið er fyrir miðju á myndinni,.

Um átta leitið fórum við gamla fólkið af stað heim á leið í Jagersbo enda komið kvöld og farið að kulna. Á svæðinu okkar var mikið um að vera enda er hér aðalfundur áhugamanna um KABE húsvagna þessa helgi.

Afmælisbarnið og lopapeysuliðið

 


Forseti Pólands og ég

Gaui í FinnlandiÍ gær vöknuðum við um hálf átta og fórum niður í morgunverð (mjög góður). Fór upp aftur og lagði mig(Hugrún) til ellefu fór þá í labbitúr um hverfið og keypti mér smá að borða í matvöruverslun, Gaui vað á ráðstefnunni til þrjú. Fórum þá niður í miðbæ Helsinki þar var margt að skoða margar fallegar byggingar.Fórum og skoðuðum rússneska kirkju mjög flott þegar við komum þaðan  komum við að byggingu semvoru lífverðir og virkaði eitthvað mikið að gerast  svo tvær stelpur til okkar og spurðu okkur hvort forseti Póllands væri kominn. Næst var að lögreglumenn sem ráku okkur frá húsinu.  Ég sjálfur papparazzinn (Hugrún) fór á flug við höfðum ekki hugmynd um að einhver forseti væri að mæta á svæðið. Annars voru tuttugu mínútur í að hann kæmi svo að papparazzinn nennti ekki að bíða og lét sér nægja að taka myndir af limmum og frægu fólki.Síðan héldum við áfram upp götuna og viti menn annað papparaazzi tækifæri kom. Verið var að opna formlega lúxusverslunina Louis Vuitton og var þar mikil viðhöfn. limmurnar runnu í hlaðið og myndavélin fór á flug. Eftir þetta skruppum við inná bar til að róa okkur og fórum síðan uppá hótel (Radison SAS)Í morgun vöknuðum snemma enda að fara í flug, fórum til Danmerkur kl 10,20 og komum þangað um tólf keyrðum beint upp á tjaldstæði og höfðum það rólegt það sem eftir var dags. Læt fylgja með myndir úr Finnlandsför.Beðið eftir forsetanumLouis Vuitton viðhafnaropnun

Finnland

Vöknuðum kl 7 í morgun það var um klukkutíma keyrsla til Svagentorp í Svíþjóð þar sem við tökum lestina yfir til Danmerkur, við skildum bílinn þar eftir. Flugum klukkan 12 til Finnlands hér er þriggja tíma mismunur miðað við Ísland.

Enduðum daginn á að fara niður í miðbæ og settumst niður á góðan veitingastað og pöntum okkur stóra næringarríka nautasteik.

 


Malmö og Finnland

Fórum í dag að heimsækja Guðrún Bjarnadóttir  (LBHí) og bónda í Malmö. Dagurinn var yndislegur, byrjaði með sól og 14 stiga hita. Gróðurinn er allur að taka við sér og vorið er loksins að koma.Smile

Undir kvöld fórum við síðan heim  í Jagersro til að undirbúa Finnlandsferð, en við verðum í Helsinki næstu 4 daga þar sem Guðjón verður á ráðstefnu.


Dýragardur (Skanes Djurpark)

Vöknuðum seint í morgun, fórum á fætur kl hálf ellefu. Fengum okkur að borða og fórum í dýragarðinn sem er fimmtánmínútna keyrsla. Það var mikið að skoða og mörg dýr sem við höfðum ekki séð áður meðal annars elgir og storkur og fleiri dýr. Læt fylgja með myndir úr garðinum

 Gaui og elgur (ekki neitt smá stór)Uxa tegund


Froskurinn og Hugrún

Í gærkveldi lá við að Hugrún myrti frosk. Honum varð það á að þvælast fyrir henni í myrkrinu á leið hennar frá þjónustubyggingunni.  Munaði aðeins 5 cm  að hún stigi á hann. Hvoru brá meira er erfitt að segja.

 Í dag fórum við til Hassleholm og síðan Horby sem liggur suður af staðnum sem við erum á. Þar fórum við og skoðuðum tjaldsvæðið sem við vorum að spá í fyrst. Annars fór dagurinn mest í að slæpast.

Verð að fá að bæta við. Gaui fór áðan út í fortjald og viti menn það var kominn gestur í inniskóna mína ég læt fylgja með myndir.

Gesturfroskurinn

 

 


Nýja fortjaldið

Það var nóg að gera í dag nýa fortjaldið sett upp það gekk frábærlega vel. Gaui fór og keypti kolagrill þannig að það var haldið uppá það með nautasteik. Þvílíkur munur engir skór inní hjólhýsinu  Smile Læt fylgja með mynd af hjólhýsinu og Gaua að setja saman nýja kolagrillið 

Gaui hreykinnGaui að setja saman nýa grillið 


Rólegheit og viðgerðir

Í gær var Gaui að gera við hjólhýsið þ.e.a.s skipta út festingum fyrir fortjaldið þær fóru þegar fortjalið fauk af, en við keyptum nýtt í Lidköping. Fórum í dag til Malmö og löbbuðum bara um og skoðum bæjarlífið. Komum heim um sjö. Þannig bara rólegheit. Má til að setja eina mynd af einum vini okkar sem sést reglulega á vatninu (ég tók hana í gærmorgun)

.

Góður vinur

 


Loksins komin heim aftur i jagersbo

 Í dag ókum við heim til Jagersbo frá 5stjörnu tjaldsvæðinu í Lidköping. Þessir 360km tóku að vísu 6 tíma að keyra enda töluverð umferð og bílinn ekki hraðskreiður með hjólhýsið afturí. Það var gaman að prófa annað tjaldsvæði en hvílíkur munur. Þetta fína 5stjörnu sem við vorum á var verulega verra en i Jagersbo. Sturturnar gerðar fyrir unglingsstúlkur í megrun og sorplykt í uppvöskunaraðstöðunni  sem einnig var eldunaraðstaða. Eitthvað annað en í Jagersbo þar sem allt er hreint og fínt og vel rúmt. Það var tekið á móti okkur hér heima í Jagersbo með fuglasöng kl: 6 að kveldi. Annars gekk ferðalagið niður eftir mjög vel. Við komum við að sjá “Trönurnar” aftur og kíktum í verslanir í Vaxjo. Veðrið er búið að vera dásamlegt í dag, 13 stiga hiti og sól á seinnihluta leiðarinnar. 

Á ferðinni

Fórum í gær frá Jagersbo (tjaldstæðinu okkar í Hoor) klukkan 12:30 áleiðis til Lidköping sem er c.a. 340 km. Þetta var um 6 tíma keyrsla með stoppum.   Í dag fórum  við síðan að vatni þar sem "Trönur"  frá Spáni koma einu sinni á ári og parar sig. Þessir stóru fuglar er ótrúlega fagur sjón. Í dag er talið að um 11.800 "Trönur" hafi verið þarna. Geysilegur mannfjöldi var þarna að skoða og taka myndir enda koma ljósmyndarar úr öllum heimshornum til að ljósmynda þetta fyrirbæri. Sjá http://www.hornborga.com

Síðan fór við að skoða gamlar klaustur rústir "Guðbrandsrústirnar" þar rétt hjá sem eru frá árinu 1100. Það var ákaflega merkilegt að sjá hversu vel þeim var viðhaldið og hversu stórt klaustrið hafði verið. Síðan á leiðinni í hjólhýsið í Lidköping komum fórum við að skoða fortjöld og fleira í "Husvagn-Svensson" . Sennilega sláum við til og fáum okkur nýtt fortjald m.m. í fyrramálið áður en við förum heim aftur í jagerbo.

Má til að bæta einu við, hér breyttist klukkan í dag. Nú erum við tveimur tímum á undan  Íslandi 

Trönur


Kristianstad

Fórum í dag til Kristianstad ætluðum að leita að hjólhýsasölu en fundum hana ekki þar, fórum niðrí miðbæ en það var svo mikið af fólki að manni fannst maður vera að kafna, fórum þó aðeins í HM en ekki hvað , ég keypti mér slæðu. Á leiðinni heim sáum við skilti við veginn að eitthvað væri athyglisvert en það var hellir sem við keyrðum að, en þá var hann ekki opinn fyrr en í maí. Smile

Jæja förum þá  heim á við og komum við í matvöruverslun og komum síðan heim um sex leitið. Gaui þessi elska er að elda og í fyrsta skipti keyptur fiskur (norskur eldislax) svo er bara að vita hvernig smakkast, fiskurinn er náttúrlega bestur heima á fróni

 

 


Kanínur og syngjandi fuglar

Vöknuðum við að kanínurnar hlupu í kringum hjólhýsið og fuglarnir sungu fyrir okkur. Í gær fórum við til Landskrona og skoðuðum  virkið (aftur). Ég  plataði Gaua í göngutúr  umhverfis síkið,  aumingja hann, hann var tuðandi allan tímann (vorum í um klukkutíma ). Á leiðinni heim sá ég skilti við veginn sem stóð "slott" (herragarður) keyrðum þar að og ekki neitt smá herragarður.  Tókum myndir og eyddum töluverðri stund þar.

Í dag fórum við í Trelleborg til að heimsækja vini okkar, Önnu og Valla, prófuðum GPS tækið hans Matta, sem stóð sig með prýði þegar Gaui reyndi að villast á fáförnum sveitarvegum. Annars notuðum við daginn mest til að slappa af.

Læt fylgja með mynd af pirruðum Gaua við virkið í byrjun gönguferðar, og af herragarðinum. 

ErfittHerragarður

 

 


Dalby - Einbýlið okkar

Fórum í dag um hádegi  til að skoða húsbílasölu í Tommelilla þar sem við keyptum ljósaskerm í litlu stofuna okkarGrin. Á á leiðinni tilbaka elti Gaui hugdetturnar mínar. Ég sá skilti við veginn sem á stóð "Konst gallery" og benti á verksmiðju. Þar var að finna myndlist og skartgripi. Þetta var rétt áður en við komum að þorpinu Dalby.Enduðum svo í Lundi en þar sem við fórum í  risa raftækjabúð "MJÖG" ódýra. Við sem vorum nýbúin að kaupa straujárn sem var helmingi ódýrara þarna Frown.

Stuttu eftir að við komum heim í litla einbýlishúsið okkar byrjaði að snjóa. Allt er ný orðið hvítt úti. Stóru trén eru orðin alhvít og blæjalogn úti. Ljósin speglast í vatninu,,, hvílik fegurð

Hér er vægast sagt yndislegt að vera.

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ferðalögin okkar

Höfundur

Gaui og Hugrún
Gaui og Hugrún
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1645
  • IMG_1624
  • IMG_1638
  • IMG_1627
  • IMG_1627

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband