Færsluflokkur: Ferðalög

Frábært mannlíf í Skopje

Fengum okkur göngutúr að kanna byggingar og mannlíf.

Var verið að taka upp eitthvað :) img_1523.jpg Hótelið okkar. Gaui á gamla markaðinum.


Ferðalag til Makedoníu.

Lögðum af stað frá Íslandi 26 maí áleiðis til Skopje. Flugum til Búdapest og vorum þar í tvær nætur. Komum hér í Skopje þann 28 maí byrjaði ekki vel Gaui ætlaði taka út peninga í hraðbanka og var kortið hirt af bankanum þar sem hann bað um meira en hámarkið sem er 12 þús isk. 

En þetta bjargaðist þar sem við áttum danskar krónur fyrir leigubílnum ( Leigubíllinn tók ekki kort.) Erum búin að fá okkur gönguferð og skoða okkur um. Fengum okkur að borða pasta og svínakjöt ástamt bjór og hvítvíni heilar 2000 kr :)

Gaui  Skál í góðum bjór Sjálfsmynd


Hjólatúr til Höör og fleira :)

Á miðviudagskvöldinu kallaði Gaui á mig út og sagði mér að koma með myndavélina tunglið var fullt og þoka yfir svæðinu og ég stóðst ekki mátið og tók myndir. Á fimmtudaginn kom nágranninn ( Alvar ) með bátinn sinn á svæðið og setti hann niður, tók ég myndir og var gaman að fylgjast með. Á föstudaginn fór ég ( Hugrún ) stuttan hjólatúr aðeins að halda mér við efnið he he. Á laugardeginum var meiriháttar veður sól og hiti fór uppí 23 stig og fór ég ( Hugrún ) í góðan hjólatúr fór uppí Höör og tók myndir. Í dag sunnudag er búið að vera úrhellisrignig og skruppum við Gaui því að í búðir til Malmo og tekið rólega það sem eftir er dags.

 

 


Heimsókn ( Arngrímur )

Fengum góða heimsókn í gær. Arngrímur kom hjólandi frá Staffanstorp u.þ.b. 50 km leið þvílíkur snillingur. Gaui grillaði og áttum við góða kvöldstund saman. Það var svo mikið rok og rigning daginn eftir  að við skutluðum honum heim. Setti myndir í albúmið Svíþjóð 2014

 

 

 

 

 


Nýia heimið og nýi fákurinn ( reiðhjólið )

Fórum í biltema í Malmo á fimmtugainn og keyptum reyðhjól fyrir (Hugrún ). Og byrjuðum morgunin á því slá grasið ( Hugrún ) fór svo í hjóatúr. Gaui grillaði svo seinnipartinn ( namm namm ). Fór aftur í gær í smá hjólatúr og rakst á skemmtilega karla set myndir í albúmið Svíþjóð 2014.

 

 

 

 

 

 


Heima í Höör ( Jägersbo )

Í  hádeginu komu helling af gömlum bílum hér við tjaldstæðið og náði ég myndum af þeim. Kíktum svo til Önnu og Valla og fór Gaui til Óla stráksins síns ( Trelliborgar ). Komum heim seinnipartinn og var haft það náðugt það sem eftir var kvölds. 

 

 


Helgin 29-30 mars.

Vöknuðum um sjö á laugardagsmorninum og vorum komin til Matta og Stínu um átta. Fórum svo öll fjögur uppá Keldnholt og tengdum hjolhýið við bílinn.

Komum við í Hveragerði á náðum í einn farþega í viðbót sem var hvolpur sem var að fara til nýs eiganda á Egisstaði en Magnea og Steina áttu hann. Set mynd af Magneu Steina og Lappa.

 

Magnea Steini og Lappi

 

 

 

 

 

 

 

 

Gekk ferðin vel og stoppuðum við nokkrum sinnum til að borða og viðra okkur. Komum við á Seyðisfjörð um kl átta um kvöldið, var annars þó nokkuð mikill snjór á Fjarðarheiði. Gengum frá hjólhýsinu á Seiðisfirði og var keyrt á Egilsstaði og fengum við okkur hamborgara og fraskar náðum fimm mínútum áður en grillið lokaði :) . Var svo keyrt stax til baka til Reykavíkur, komum við í bæinn um átta um morguninn ansi þreytt öll.

 

Matt og Stína við Skaftafell

   Hjólhýsið og bíllinn á Fjarðarheiði.  Hjólhýsið á Seyðisfirði.


Heima í Höör og fleira.

Laugardagur: Fórum útí Öland og skoðuðum stærsta vita Svíþjóðar Lång Jan og fórum í sund seinni partinn.

 Elín og Gaui við vitann. Eín efst uppá vitanum.

Sunnudagur: Fórum í heimsókn á tjaldstæðið sem við vorum á 2008. Og okkur leið sem við værum komin aftur heim. Við hittum á okkar gömlu og góðu granna og rifjuðum upp gamlar minningar sem eru yndirslegar.

Vi åkte till campingen i Höör var vi bodde sommaren 2008. Vi fick den kännslan att vi var hemma.  Träffade voras underbara grannar och vänner.

Ég og Eva. Í góðra vina hópi. Sofia og Kevin.

Mánudagur: Farið í sund og notið sólarinnar.

Gaui og Eín í sundi.

Þriðjudagur: Tekið rólega og aðeins skroppið í búðir.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Midsommar i Svergie.

Vöknuðum um níu og fengum okkur morgunverð. Traktor kom kl ellefu með tvær heygrindur og fengu börn og fullorðnir að fara með og sækja "midsommarstöngina". Áður en við lögðum af stað voru þrumur og eldingar og á leiðinni gerði úrhellisrigningu sem var reyndar mjög gaman. Klukkan þrjú var skemmtun hér á svæðinu og var dansað í kringum stöngina og var meirháttar veður það sem eftir var deginum.

Við Elín á leið að sækja Miðsumarsstöngina.  Elín í ferðinni. Frábært veður á miðsommar.

 

 

 

 

 


Afslöppun á tjaldsvæðinu

Fimmtudagur: Var tekið rólega á tjaldsvæðinu og farið í sund.

Ég og Elín í sundi. Elín. 

 

 

 

 

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ferðalögin okkar

Höfundur

Gaui og Hugrún
Gaui og Hugrún
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1645
  • IMG_1624
  • IMG_1638
  • IMG_1627
  • IMG_1627

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 32791

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband